Þar sem að Hugi.is hefur tekið breytingum og kominn inn stærri banner fyrir áhugamálin hefur verið ákveðið að efna til hugmyndakeppnar um nýjan banner - í nýju stærðinni.

Reglurnar eru einfaldar:

1. Stærðin má ekki vera stærri né minni en 629x107px.

2. Bannerinn þarf að tengjast skátastarfi á einhvern hátt.

3. Sendið bannerinn inn sem mynd með nafnið banner_nafn*.

4. Hver notandi má senda inn eins marga bannera og hann vill.

5. Ef að bannerinn er merktur áhugamálinu þá er bannað að merkja hann á þennan hátt: /Skatar

Skilafrestur er þriðjudaginn 27. maí.



Þegar skilafrestur rennur út munu stjórnendur velja úr flottustu bannerana og þá verður kosið um þá.


Verðlaunin eru þau að fá bannerinn efst á áhugamálið.
- Á huga frá 6. október 2000