Þá er árið 2007 liðið og framundan blasir við viðburðarríkt ár í skátastarfi og vonandi mun það verða jafn frábært og árið 2007 hefur verið fyrir flesta.

En ég vil hvetja notendur til að senda inn efni á áhugamálið. Fór ekki hellingur af fólki í útilegur í jólafríinu og þeir sem fóru í Þrist, endilega skrifið ferðasögu og sendið inn myndir. Einnig ef þið vitið um einhverja skemmtilega viðburði sem þarf að koma á framfæri, ekki hika við að senda þá inn á atburðakubbinn.

Sýnum nú kraft og komum áhugamálinu aftur á gott skrið!
- Á huga frá 6. október 2000