Verður ekki.

Við ætlum ekki að halda kaffihúsakvöld að þessu sinni gott fólk. En engar áhyggjur við snúum aftur að mánuði liðnum. Málið er að við sáum þetta frábæra kaffihúsakvöld á vegum Hraunbúa til að styðja við bakið á þrem stelpum sem misstu víst húsið í bruna. Það er mjög góður málstaður og bar ég það undir Elmar og var ákveðið að vera ekki að halda kaffihúsakvöld í samkeppni við það. Endilega allir að mæta á kaffihúsakvöld Hraunbúa í Hafnafirðinum á sunnudaginn 1000 kr inn og hlaðborð allur ágóði fer til stelpnanna. Smári gerir kanski betri auglýsingu