Ég ætla bara að minna þá sem langar að mæta á Orgíu að skrá sig, allavega láta vita að þið hafið áhuga því þá getum við mögulega reynt að redda einhverju liði fari, og þið sem ætlið að fara og getið farið keyrandi að láta okkur vita ef þið ætlið á bíl og hversu mörg laus pláss eru í bílnum til að við getum plöggað fleirum fari.

Semsagt, endilega drífa í að skrá sig þið sem viljið koma.

Einnig eru í gangi einhver nettilboð hjá flugfélaginu núna en þau eru yfirleitt fljót að fara.

Skráning fer fram á rs.orgia@gmail.com og eru allar nauðsynlega upplýsingar í greininni um Rs. Orgíu.

Bætt við 21. október 2008 - 23:06
Eftir miklar samningaviðræður í mótsnefnd hefur verið að ákveðið að lækka mótsgjaldið niður í 3500 kr, vegna slæms efnahagsástands er ekki hægt að lækka það meira. En þessi peningur fer t.d. í sund, mat á laugardagskvöldinu, köfunarkynningu og gas og allskonar dót í skálann þannig að okkur finnst þetta frekar gjöf en gjald.
Svo vil ég minna fólk að skrá sig á rs.orgia@gmail.com því ef fólk er ekki skráð þar er það ekki skráð á Rs. Orgía.

Kv. Rs. Búrhvalu