Já þar sem mér leiðist í vinnunni kæru hugaskátar þá ákvað ég að gera þráð..

Spurningin er: Hvaða útilega/útlegur standa uppúr hjá þér.. þarf ekkert að vera eitthvað með skátunum.

Fyrir mig eru það reyndar nokkrar..

Sveitarútilega sem ég fór í þar sem við vorum send í herbúðir. Þurftum að kaupa dótið okkar og fengum peninginn, landnímur, með því að gera ýmsa hluti.

Kong-Fú - Kongunglegaforingjaútilegan..vá þetta var massa stuð 9 strákar og ég á gistiheimili, bændagistingu, í Hvalfirði…og ekkert smá þægileg rúm þarna..

Og jú…Kotasæla..það var einfaldlega bara stuð..

Jæja komið að ykkur!
Fríða Björk hefur skrifað.