Í útilegunni verður boðið uppá þrjár gönguferðir á laugardegi sem þátttakendur geta skellt sér í.
1. Uppá Skeggja.
2. Inn í Innstadal.
3. Ganga inn í Reykjadal þar sem hægt er að fara í bað.

Grillað verður á laugardagskvöldi en hver og einn kemur með eigin mat til að setja á grillið. Á sunnudegi verður útilegunni lokað með hinu árlega Vörðuhlaupi og fer sigurvegari hlaupsins heim með farandbikar Vörðuhlaupsins.
Kostnaður útilegunnar er 1500 kr. á mann.


Skráning fer fram á e-mailinu:
i_sjounda_himni@hotmail.com (Ef spurningar vakna hikið ekki við að senda póst.)
stjórnandi á /skátar