Hæhæ, þetta er Halldóra víflastelpa
Þannig var málum háttað, að mér og Gunni (einnig víflastelpa) var úthlutað að skipuleggja reunion útilegu (minnir að það hafi verið á þrettándabrennu) tælandsfara. Jamm og við hittumst, ég og Gunnur, til að skipuleggja, og skipulögðum helling, en eins og mörg ykkar vitið var útilegunni frestað vegna lélegrar þátttökugleði. Boðað var til kaffihúsakvölds sem margir mættu á og útileguhelgi nr. 2 var ákveðin. Enn og aftur var henni frestað, en núna vegna gleymsku og tímaleysi skipuleggjenda. Nú langar mig að vita hvenær flestir komast, loksins þegar prófin eru búin, helst fyrir sumarið og hvert þá? með fyrirfram þökk :P