Það er sennilega í öllum skátaheimilum að fólk gleymir fötunum sínum þar eða í útileigu. Ég var á sveitarfundi um daginn og vorum við að skoða þar óskilamuni sem voru hryllilega fyndnir. Við klæddum okkur upp eins og hálfvitar en við komumst að því að þetta væri góð búingageymsla. Þarna var kjóll bleikur algjör hryllingur frá eitthverju nærfata merki og náttfata merki. Flokksforinginn minn tók hann og skellti sér í hann. Það var ógeð. Við grenjuðum úr hlátri þegar við fundum hræðilegan sundbol. Hann var svo ógeðslegur að ein stelpan sagði að hún gæfi þeim 50 kr fyrir að fara í hann. Stuttu seinna kom einn strákur búin að klæða sig upp í sundbolinn utanyfir og heimtaði peningana, en það gekk heldur illa því að hún sagðist bara hafa verið að djóka. Þessi sama stelpa fann rosa fallega peysu en komst síðan að því að það var hægt að festa hana saman niðri svo þetta var “peysusamfella” hún var í pilsi úr óskilamununum og fór í þessa peysu yfir og festi hana. Svo ætluðum við út í yfir en allir áttu að fara í eitthverju úr óskilamununum, ég var í bláu pilsi með hvítum doppum. Það var heldur hryllilegt. Flokksforinginn minn fór í kápuna sína og í þennan bleika kjól yfir. Það gekk heldur brussulega að laga kjólinn því að hettann var föst svo það leit út eins og hún væri með kryppu.
….