Ok, er einhver hérna annar en ég og mínir skátafélagar sem hata þetta lag? Ég gjörsamlega þoli það ekki. Það er ekki sjálf lagið sem fer í mig, heldur þessi heimskulegi, kanalegi, “boy-scout” texti.

Má ég þá heldur biðja um falleg kvöldvökulög eins og “Þýtur í laufi” eða “Fram í heiðanna ró”.