Rs. Orgía! Eins og flestir hafa eflaust heyrt verður eitt sveittasta Rekka- og Róverskátamót aldarinnar haldið á Ísafirði helgina 24-26 október og er skráning hafin á rs.orgia@gmail.com.

Þetta verður að sjálfsögðu hörkustuð að hætti hinna alræmdu ísfirðinga sem allir ættu að hafa heyrt um.
Mótsgjaldið eru litlar 4000 krónur en lækkar eflaust eins og krónan. Inni í því er sund, kvöldmatur á laugardegi og köfunarkynning.

Eins og áður kom fram verður partýið á Ísafirði, nánar tiltekið í Dyngju í Dagverðardal sem er besti skáli á landinu, án efa.

Ekki verður nein rosaleg dagskrá í boði en farið verður í sund, köfunarkynning verður í boði og svo verður orgía a la Ágúst.

Það sem verður að koma fram í skráningarpóstinum er nafn, kennitala, skóstærð, skátafélag, skátasveit, e-mail, gsm og nafn og símanúmer aðstandanda fyrir þá sem eru ekki orðnir 18. Svo er að sjálfsögðu nauðsynlegt að senda mjög svo eggjandi mynd með. Það verða verðlaun fyrir flottustu myndina! Við sendum svo pottþétt póst til baka til að staðfesta skráninguna.

Þar sem talsverður kostnaður fylgir því að fara til Ísafjarðar viljum við biðja þá sem langar að koma og vantar far að hafa samband við okkur og við athugum hvort ekki sé laust pláss í bíl með einhverjum.

Kv. Rs. Búrhvalur.