Sælar

Ds. Kotasæla er dróttskátamót sem haldið verður 19-21 janúar 2007. Roverskátasveitin Barrónar standa fyrir þessu móti en Barrónar eru einkum þekktir fyrir ótrúlega þrautseigju og náttúrulega fegurð en félagskapur þeirra er ávísun á góða skemmtun.

Mótið er haldið í skátaskálanum Dalokoti sem er staðsettur upp á hellisheiði. Skálinn hefur verið undanfarinn ár í uppbyggingu og þar af leiðandi er hann í sínu besta formi þessa dagana. Fyrir þá sem ekki vita nákvæmlega hvar Dalakot er þá er hann beint á móti Skíðaskálanum í Hveradölum, þ.e.a.s. hinumegin við þjóðvegin, hvítur skáli með rauðu þaki, ætti ekki að fara framhjá neinum.

Mótsgjaldið er 2000 krónur sem er nú bara gjöf en ekki gjald. innifalið í mótsgjaldinu er skálagjald, bolur (ef þú skráir þig fyrir sunnudagin 14 janúar), dagskrá, kvöldkaffi og að sjálfsögðu taumlaus skemmtun í faðmi náttúrunar.

Eins og sagði hér að ofan er matur ekki innifalin í mótsgjaldinu og því verða þátttakendur að taka með sér sinn eigin mat. Það verða nokkrar gashellur (2-4) á staðnum en ef þið eruð ekki hrifin af því að bíða í biðröð eftir því að komast að þá mæli ég með að einhverjir taki með sér sinn eigin primus. Svo vill ég minna alla á að það er list að geta lifað með 30-50 manns inn í einum skála þar sem allir eru að elda sitthvoran kvöldmatinn.

Mótstjóri er Daníel Hrafn Kristleifsson en hann er gull af manni og fæddist bókstaflega skáti, hann kemur af göfugum skátaættum og engin ætti að láta skátamót með þessum prýðispilti framhjá sér fara.

Dagskrá mótssins er öll val, þ.e.a.s. þátttakendur geta valið um það hvort þeir vilji kúra ofaní poka, skapa sýna eigin dagskrá eða taka þátt í þeirri valdagskrá sem boðið er upp á. Sú valdagskrá sem í boði er fer fram fyrri part dags bæði laugardag og sunnudag.
Á laugardeginum er boðið upp á svokallaða háloftadagskrá þar sem boðið verður upp á sig, flyfox og vonandi eitthvað klifur ef aðstæður leyfa. Ég mæli eindregið með því að fólk komi með sig- eða klifurbelti því þá þarf viðkomandi ekki að bíða í biðröð eftir belti. Þessi dagskrá er að sjálfsögðu fyrir bæði kyn og alla þyngdarflokka.
Á sunnudeginum er boðið upp á Ævintýraferð í boði HSG en þar verður farið með hjálparsveitarbílum upp á heiði í smá bíltúr og stoppað á áhugaverðum stöðum. Mögulegt er að farið verði í náttúrlegt sund í þessari ferð og því eru sundföt æskileg en nekt er á ábyrgt hvers og eins (ATH. það er ekki búið að staðfesta að HSG sjái um þennan dagskrálið og ef ekki þá reddum við þessum með öðrum bílum) Þessi dagskrárliður kostar 500 kr aukalega við mótsgjaldið en það er að sjálfsögðu bensínkostnaður auk annara útgjalda.

Skráning á mótið fer fram á www.skatinn.net/kotasaela
hinsvegar ef svo ólíklega vill til að einhver sem er búin að skrá sig á mótið og ætlar ekki að mæta þá vill ég biðja hinn sama um að hugsa sinn gang og láta síðan okkur vita að hann ætli ekki að mæta á mótið svo að við séum ekki að kaupa bol handa honum auk annars undirbúnings.

Að lokum vill ég minna fólk á að skátamót er góð skemmtun, þetta skátamót er bannað innan 15 ára.

Kv.
Rs. Barrónar

Munið… www.skatinn.net/kotasaela