Sveitarforingjar óskast! Skátafélagið Hraunbúar auglýsir eftir leiðbeinanda við eftirtaldar stöður:


- Sveitarforingja fyrir skátasveit - Vogabúa
- Sveitarforingja fyrir stúlknasveit – Rauðskinnur


Um launað starf er að ræða. Einnig er möguleiki á að viðkomandi fái starf hjá félaginu yfir sumarið við rekstur Útilífsskóla og umsjón með vinnuflokki.

Viðkomandi þurfa að vera eldri en tvítugt, hafa reynslu af skátastarfi. Frábær aukavinna fyrir skólafólk.

Sveitarforingi fyrir skátasveit Vogabúa
Óskað er eftir skáta 20 ára eða eldri til að hafa umsjón með skátastarfi fyrir 9 ára og eldri af báðum kynjum. Starfið fer fram í Vogum Vatnsleysuströnd, Veittur er styrkur vegna aksturs. Starfið fer fram einn dag í viku og hægt að styðjast við dagskrá fyrrum sveitarforingja.

Sveitarforingi fyrir stúlknasveit Rauðskinna
Starfið felur í sér umsjón með starfi 11-15 ára stúlkna í Hraunbúum. Starfið er vel skipulagt og í föstum skorðum.

Góð starfsaðstaða er fyrir hendi og leitast félagið við að mennta tilvonandi sveitarforingja. Í skátafélaginu Hraunbúum eru starfandi um 200 börn og unglingar. Hjá félaginu starfar einvalalið reyndra og vel menntaðra leiðbeinenda með margra ára reynslu í skátastarfi.

Félagið hefur aðsetur í glæsilegu skátaheimili við Víðistaðatún í hjarta Hafnarfjarðar.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda umsóknir á hraunbuar@hraunbuar.is eða á beggi@hraunbuar.is. Nánari upplýsingar gefur Inga María í síma 824 0906.
- Á huga frá 6. október 2000