Dalakot Þetta er eins og það hafi gerst í gær, ég var níu ára gamall og var á leiðinni í fyrstu skátaútileguna mína. Þetta var ekki eins og það er í dag, það var engin rúta, ég fékk engan útbúnaðarlista og það var ekki rafmagn í skálanum. Þetta var svo sannarlega draumur í dós, ævintýraferð í rafmagnslausan skátaskála….ohhh gömlu góðu tímarnir. Ég var semsagt ungur dalbúi á leiði í mína fyrstu útilegu og auðvita í dalakot. Þið kannist örugglega flest við dalakot, ef þið keyrið austur frá reykjavík þá sjáið þið glæsilega höll á hægri hönd þegar þið eruð að keyra upp á hellisheiðina og ef þið lítið til vinstri á sama tíma sjáið þið kofa sem gengur undir nafninu skíðaskálinn í hveradölum, passið ykkur að fara ekki þangað, skítapleis.

Dalkot er semsagt höllin á mótir skíðaskálum í hveradölum, að vísu hefur dalakot átt slæm ár núna undanfarið en vitið menn. Hún er skráð í extream makeover og það líður ekki að löngu þar til að flottasti skáli Íslands verður orðin flottasti skátaskáli norðan alpafjalla. Í dalakoti er hægt að finna allt sem ungir skátar girnast, klettar í gömlu grjótnámuni, stórt óslétt tún þar sem hægt er að fara í ýmsa leiki, hellisheiðina fyrir hvað action sem er, unaðslega breiðar kojur sem hægt er að kúra í og síðast en ekki síst strippsúlu, ó já dróttskátar þið lásuð rétt skálinn inniheldur strippsúlu.

En því miður tekur paradís ekki á móti fólki í bili vegna viðgerða en það má alltaf semja við áhugasama.


Í alvöru talað þá er dalakot hvíti skálinn á móti skíðaskálanum í hveradölum. Hann er ekki til útleigu í augnablikinu nema fyrir áhugasama, því eins og áður sagði er hann í makeover. Hann er hitaður upp með gasi og hefur svefnpláss fyrir alveg 50 manns. Ef ykkur finnst gaman í legó þá getið þið vel komið 357 manns inn ef þið raðið vel, en ég mæli samt ekki með mikið fleiri en 50 manns. Skálinn er á tveim hæðum, á neðri hæðinni er eldhús, geymsla, kompa sem er verðandi klósett annars er líka til staðar unaðslegur útikamar, anddyri matsalur og svo auðvita stiginn upp á efri hæðina þar sem er stór svefnsalur, foringjaherbergi og að sjálfsögðu gangur þar á milli.

Skálaverðir eru Ottó, Viktor og Fúsi og það er hægt að komast í samband við mig í síma 6918666 ef ykkur vantar frekari upplýsingar.