Þar sem langt er í síðustu grein ákvað ég að segja pínulítið frá nýjum námskeiðum sem Bandalagið stendur fyrir!

Námskeiðin heita RÆTUR og virka þannig að yfir heila helgi eru 4-5 mismunandi stutt námskeið sem hægt er að velja á milli. Þetta gæti hljómað skringilega en ég skal sýna dæmi:

Næstu helgi (29. - 30. janúar) er svona námskeið uppá Bandalagi (Hraunbæ 123). Hægt er að velja um fjögur mismunandi námskeið og eru þau þessi:

Fjölmiðlanámskeið
Leikjanámskeið
Varðeldastjórnanámskeið
Fararstjórnarnámskeið

Vegna þess að fyrstu tvö námskeiðin skarast á laugardeginum og seinni tvö á sunnudeginum er bara hægt að velja um tvö námskeið.

1000 kr. kostar á öll námskeiðin (allavega þessi) og hvet ég alla til að taka þátt.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Bandalagsins