Við nokkrir félagar úr skátafélaginu Hamri vorum búnir að skipuleggja það að rölta Laugaveginn núna næstu helgi og á meðan við vorum að skipuleggja þetta þá ákváðum við að skýra þetta Scout pride og bjóða öllum þeim skátum á landinu með sem langar að rölta með okkur.

við ætlum að keyra til hellu á föstudeginum og taka rútu uppí landmannalaugar og stefnum á því að byrja að rölta úr Landmannalaugum um 2 leitið, svo tökum við rútu aftur frá Þórsmörk til hellu.

ef einhver hefur áhuga á því að labba með okkur þá má hann endilega bara mæta hress í landmannalaugar á föstudaginn kl. 2

ef þið hafið einhverjar spurningar þá getið þið annaðhvort skrifað þær hér á huga eða haft samband við mig í síma: 6918666

P.S.
þið verðið að panta ykkur pláss í skálum á leiðinni sjálf eða taka með ykkur tjald.
við berum enga ábyrgð á ykkur.

kv. Ottó