Á mörgum áhugamálum hefur verið greina-eða sögusamkeppni. Þessvegna datt mér í hug að gera slíkt hið sama!

Að vísu er það frekar langsótt að hugmyndin gangi upp, til að byrja með þyrfti að vera einhver þátttaka því að ein eða tvær greinar væru nú frekar lélegt í svona átaki.

Þessvegna gerði ég þennan kork fyrst til þess að athuga hvort að það væri áhugi fyrir þessu. Ef að þið hefðuð áhuga fyrir þessu eða viljið koma með hugmyndir í sambandi við þetta þá getið þið tjáð ykkur hér, á þessum kork. Ef að það er nægur áhugi fyrir þessarri keppni, þá er hægt að skipuleggja hana.

Ef aftur á móti fáir eða enginn hefur áhuga fyrir því að taka þátt þá auðvitað verður engin keppni.

Bjartsýniskveðjur, TinnaKristin.