Þessar nóvembertölur voru nú bara ágætar fyrir áhugamálið. Og fyrir árið 2005 í heild sinni. En hvað með það herrans ár tvöþúsundogsex? Eru mánuðurnir þar ekki líka fólk?
Janúar, febrúar, mars, apríl og maí eiga líka skilið að láta skrifa um sig tölfræðilega.

Svo eitt enn. Á þessu súper-aktíva-áhugamáli, er ekki voðalega sniðugt að senda inn greinar, tengla, korka eða bara hvað sem er til þess að koma því á skrið. Ekki vantar efnið. Af hverju skrifar engin um Ólympíumótið eða um e-ð af þessum Íslandsmótum sem að voru í vor?