28.12.2005 09:14
Jólahraðskákmót TR 2005 fer fram í kvöld
Jólahraðskákmót T.R. verður haldið miðvikudaginn 28. desember og hefst það kl. 20.00. Tefldar verða 2x7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Veitt verða þrenn verðlaun og hlýtur sigurvegarinn nafnbótina Jólasveinn T.R. 2005.

Þátttökugjöld verða kr. 600 fyrir félagsmenn 16 ára og eldri (kr. 800 fyrir aðra) og kr. 400 fyrir félagsmenn 15 ára og yngri (kr. 500 fyrir aðra)