Við Imbakassi höfum tekið upp á því að tefla bréfskák. Ég vona að það valdi ekki deilum eins og SMS skákin mín hér um daginn. Mig langaði til að leyfa ykkur að sjá fyrstu fimm leikina.

Hvítt: Imbakassi
Svart: Stefanbh

1.e4 - e5
2.d4 - exd4
3.c3 - Rc6
4.Rf3 - De7
5.Be2 - Rf6


Ég vona að þið hafið gaman af og ég mun senda leiki 6-10 þegar þeim er lokið.

P.s. gaman væri að fá almenna umræðu um þessa skák og fyrstu fimm leiki hennar.