Ég hef tekið eftir því að pelabörnin sem eru ennþá á bleyjustiginu koma hingað inn til að kalla okkur skákunnendur nörda. Ég tel að það sé kominn tími til að það sé gert gangstör í þessu máli og það hið fyrsta. Ég tel ekki nóg að gefa viðvörun, það á bara að henda þeim notendum sem koma ýtrekað hingað inn og kasta sínum skít yfir okkur með orðbragði sem ekki á heima hér út eða á svartann lista. Ég sé að einn ákveðinn notandi hefur komið og kastað skít, fengið viðvörun en heldur áfram að kasta sínum skít yfir okkur. Er ekki kominn tími til að við tökum á svona notendum?