Ég var að spila bridge með vinum mínum og þeir urðu sagnhafar í tveimur gröndum. Svo þegar við vorum búnir að taka þrjá og þeir fjóra þá hélt makkerinn minn að hann ætti rest. Hann tók á tvo ása og þar með var bókin okkar komin. Svo þá lét hann út spaðadrollu sem annar af hinum drap með kónginum. Svo tók hann á hjarta og hélt að hann ætti seinasta slaginn og þeir myndu þar með ná bókinni.

Svo hann lét út hjartasjöu en þá átti ég hjartaníuna og þeir fóru einn niður. Og vinur minn sem átti sjöuna trompaðist hreinlega!

En svona var þessi saga!