Skákþing Reykjavíkur 2005 hefst sunnudaginn 16. janúar nk. kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk að jafnaði 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferðir verða á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14.00.

Verðlaun í aðalkeppninni verða kr. 60.000, kr. 35.000 og kr. 20.000. Verðlaun fyrir bestan árangur skákmanna undir 2000 elóstigum (íslensk skákstig) verða kr. 15.000, kr. 10.000 og kr. 5.000. Sigurvegarinn hlýtur auk þess nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2005 og farandbikar til varðveislu í eitt ár.

Þátttökugjöld verða kr. 3.500 fyrir 16 ára og eldri og kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri.

Dagskrá mótsins

1. umferð sunnudag 16. janúar kl. 14-18
2. umferð miðvikudag 19. janúar kl. 19:30-23:30
3. umferð föstudag 21. janúar kl. 19:30-23:30
4. umferð sunnudag 23. janúar kl. 14-18
5. umferð miðvikudag 26. janúar kl. 19:30-23:30
6. umferð föstudag 28. janúar kl. 19:30-23:30
7. umferð sunnudag 30. janúar kl. 14-18
8. umferð miðvikudag 2. febrúar kl. 19:30-23:30
9. umferð föstudag 4. febrúar kl. 19:30-23:30

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning er á heimasíðu T.R. og þar verður að finna nánari upplýsingar og keppendalista. Einnig er hægt að skrá sig í síma 896-3969 eða í netfangið rz@itn.is (Ríkharður)
(\_/)