Hannes Hlífar Stefánsson vann tyrkneska skákmanninn Yakup Erturan í 1. umferð Evrópumóts einstaklinga í skák, sem fram fer í Antalya í Tyrklandi. Alþjóðlegi meistarinn, Stefán Kristjánsson, tapaði fyrir pólska stórmeistaranum Michal Krasenkow og FIDE-meistarinn, Björn Þorfinnsson tapaði fyrir sænska stórmeistaranum Evgenij Agrest.
Mesta athygli vakti í fyrstu umferð að stigahæsti keppandinn Vassily Ivanchuk tapaði fyrir búlgarska alþjóðlega meistaranum Julian Radulski
nei, ég er ekki stelpa