Svanberg Már Pálsson fékk 3 vinninga og hafnaði í 4.-5. sæti í e-flokki Norðurlandamótsins í skólaskák sem lauk í dag. Auk Svanberg hlaut Halldór Brynjar Halldórsson 3 vinninga í a-flokki. Ágúst Bragi Björnsson fékk 2½ vinning í c-flokki og sömu vinningatölu fékk Örn Ágústsson í d-flokki. Aðrir fengu minna. Fararstjórar voru Ríkharður Sveinsson og Páll Sigurðsson.