Sex efstir á Skákþingi Reykjavíkur!

Sex skákmenn urðu efstir og jafnir á Skákþingi Reykjavíkur sem nú er rétt lokið. Það voru Jón Viktor Gunnarsson sem sigraði Þorvarð F. Ólafsson, Stefán Kristjánsson sem gerði jafntefli við Sigurð Pál Steindórsson, Sigubjörn J. Björnsson sem lagði Björn Þorsteinsson, Björn Þorfinnsson sem vann Sævar Bjarnason og Bragi Þorfinnsson og Bergsteinn Einarsson sem gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign. Sexmenningarnir þurfa því að há úrslitakeppni um titilinn, Skákmeistari Reykjavíkur.