Íslandsmót (h)eldri og yngri spilara í tvímenning verður haldið helgina 29.-30. október næstkomandi í húsnæði Bridgesambands Íslands að Síðumúla 37, 3. hæð. Mótið fer fram 29. - 30. október.

Spilaður er barómeter tvímenningur og spilað er um gullstig. Keppnisgjald er frítt fyrir yngri spilarana en 6000 kr. á parið hjá (h)eldri spilurunum.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu BSÍ, sími 587-9360 og þar er tekið við skráningu, en einnig á heimasíðu BSÍ. Keppnisstjóri verður Heiðar Sigurjónsson.

Spilamennska hefst stundvíslega klukkan 11:00 báða dagana. Spilamennsku verður lokið á milli 18-19 á laugardag og á milli 15-16 á sunnudaginn.

Endilega að mæta, fyrst það er frítt fyrir yngrispilara, vegna þess hve fá pör hafa verið að mæta á Íslandsmót yngrispilara undanfarið þá eru enn meiri líkur á því að þið fáið gullstig.

kveðja Jói