Hér með vil ég bjóða ykkur velkomin á nýtt og betrumbætt áhugamál. Sjálf mun ég stjórna Bridge þættinum í þessu áhugamáli og hvet ég alla hérna sem spila eða hafa einhvern tímann spilað að notfæra sér þetta áhugamál til að fá ráðleggingar sem og varpa fram fyrirspurnum og veita þekkingu til annarra hugara.

Sjálf er ég keppnismanneskja með laufanæluna og ætla að vera með kennslu í grundvallarbridge og vona með því að vakni áhugi á að mæta á ungliðakvöldin á miðvikudögum niður í Síðumúla 37, því alltaf er þörf á fleiri keppnisspilurum.

Með góðri kveðju, (er að fara að keppa núna :o)),
Abigel