Jæja núna er ég búinn að vera að bíða í 5 mánuði eða meira eftir að skjár einn eigi eftir að byrja að sýna þessa þætti aftur. Núna veit ég að fólk er ekki allt sammála yfir að þetta séu bestu sjónvarspþættir í heimi :> en ég er að DEYJA. Skjár einn endaði seríu 3 allveg eins og hún endaði í Ameríku (Sem sagt á þætti sem heitir “All hell breaks loose” þar sem að galdrarnir eru afhjúpaðir og síðan snúa þau tímanum og Shax drepur Prue, og kanski eftir þennan lestur þá skiljið þið hvernig mér líður(imaCharmed FREAK)) og svo er skjár einn alltaf að monnta sig á því að þeir séu alltaf næst fyrstir (eftir ameríkönum) að byrja með þættina (sem er rugl) en sería 4 er sennilega búin úti í Ameríku!

Núna er ég bara að vona að eitthver starfsmaður frá skjá einum sjái mínar áhyggjur því að ég er allveg að deyja!!!