Hvað kom fyrir dagvaktina.

Ég hélt að þetta væru grínþættir???

Þetta er orðið að einhverjum morð-viðbjóði þar sem það er ekki nóg með að aðal vondi-gæjinn er miskunarlaus morðingji heldur þarf hann líka að vera hommi sem er einnig semi-barna(unglinga)perri.

Hvað er eiginlega í gangi. Mér fannst Næturvaktin og fyrri hluti dagvaktarinnar skemmtilegir grín þættir sem ég gat hlegið að, nú lýður mér bara illa við það að horfa á þá.

Mér hefur ekki liðið svona illa síðan ég horfði á “Börn”.

Af hverju er búið að breyta einum skemmtilegasta grín þætti Íslands í einhvern morð/perra/sálfræðilegan viðbjóð?



Ég neyðist víst til þess að fara að horfa aftur á Spaugstofuna……