Það áhuga mál sem algjörlega vantar er augljóslega Ally McBeal!!!
Þessir þættir eru argasta snilld og lang flestar persónur þáttanna líka. Af hverju höfum við það ekki sem áhugamál???

Lang flestir kannast við það að sjá sjálfan sig eða einhvern sem þeir þekkja á einn eða annan hátt í þáttunum… hver á ekki vin sem er argasta karlremba( Richard Fish)? Hver kannast ekki við að gráta það að eldast og vera eins hégómlegur og hægt er( Ally)? Hver á ekki feita vinkonu sem er samt mest sexy manneskja sem við þekkjum? Ally McBeal þættirnir eru öðruvísi en samt langbestu þættirnir sem sýndir eru í dag nema kannski mögulega neighbours sem eru álíka snilld nema á annan hátt… Fáum Ally McBeal sem áhugamál fyrr en seinna!