Þið sem hafið horft á Charmed lengi vitið ef til vill hver Prue er?
Ég er sjálf mikill aðdándi af þessum þætti og sit límd við skjáinn hvert föstudagskvöld til að horfa systurnar Piper, Phoebe og Paige.
En svo var ég að horfa á þáttinn fyrir stuttu (held þarseinasta þáttinn) þar sem eitthvað var minnst á elstu systirina, Prue og um eitthvað sem hafði komið fyrir hana.
Núna er ég að drepast úr forvitini og bókstaflega verð að fá að vita meira um Prue.
Kannski hefur hún aldrei verið í þættinum áður og að allt um þetta á kannski eftir að koma í ljós síðar en engu að síður ætla ég að senda hingað inn kork.
Jæja…hvað vitið þið um Prue?