Það er auðvitað allt morandi í unglingum núna sem eru of ung til að muna eftir upprunalegu þáttunum en þeir hófu fyrst göngu sína árið 1983. Þeir hafa þó ekki verið sýndi svo lengi í íslensku sjónvarpi - kannski frá 1987.
Taggart eru s.s. skoskir lögregluþættir og fjölluðu upphaflega um hinn brúnaþunga en snjalla lögreglumann Jim Taggart. Þættirnir nutu mikilla vinsælda en svo dó aðalleikarinn (Mark McManus) snögglega árið 1994. Þættirnir þóttu þó það vinsælir að þeir héldu áfram með aukapersónunum í aðalhlutverkum. Síðan þá hafa orðið nokkrar mannabreytingar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..