Ég, eins og svo margir aðrir eru nú komnir með DigitalÍsland sem er afruglari frá Stöð2(ÍÚ). SkjárEinn vildi ekki vera inní þessum pakka á þeim og er því ekki hægt að horfa á SkjáEinn í gegnum afruglarann.

Eftir þetta er Skjár Einn búinn að missa allt áhorf á mínu heimili. Maður nennir ekki að teygja sig alltaf í hina fjarstýringuna til þess að skipta yfir á S1, svo þarf maður líka alltaf að lækka um helming útaf því að SkjárEinn er með miklu hærra hljóð en aðrar sjónvarpsstöðvar sem mér persónulega hefur alltaf þótt ótrúlega pirrandi!