Sælt veri fólkið!

Fyrst að áramótaskaup Sjónvarpsins hafa verið í umræðunni langar mig til þess að forvitnast um það hvort að einhver hér eigi til á spólu (í góðu ásigkomulagi) áramótaskaup Sjónvarpsins árin 1985 og 1986. Fyrir þá sem ekki muna eftir þessum skaupum, þá var í því fyrra “Skaupinu stolið”, en hið seinna fjallaði að miklu leiti um leiðtogafund Reagans og Gorbatshovs í Höfða árið 1986.

Það eru margir sem telja að þessi tvö skaup séu með þeim bestu sem gerð hafa verið og er ég einn af þeim.

Ég er tilbúinn að borga fyrir afrit af þessum skaupum.
Sendið svar hérna eða sendið á mig skilaboð.


Fyrirfram þakkir,
747