Í kvöld átti að sýna frá stefnumóti stelpunnar sem lenti á móti strákunum sem léku sér að því að haga sér eins og fífl. Hvað gerðist eiginlega, af hverju var stefnumótið ekki sýnt? Það að sýna ekkert úr ferðinni er vægast sagt sorglegt þar sem ég kannast aðeins við strákinn sem vann og veit það að hann er í raun besta skinn en allir hinir halda að hann sé algjört fífl og hafi verið eitthvað vondur við stelpuna. Væri ekki betra að segja frá því hvað gerðist í raun og veru í stað þess að láta sjónvarpsáhorfendur giska á það hvað gerðist? Þessi strákur er sennilega mjög illa liðinn af mörgum núna sem vita ekkert hvort hann gerði eitthvað í raun og veru.

Hvað finnst ykkur? Veit einhver hvað gerðist?

p.s. ég er strax búin að heyra illkvittnar sögur….