Muniði eftir þættinum þegar Dewie átti að gæta hamstursins sem bekkurinn hans átti? Í endanum setti hann hamsturinn í kúlu og frelsaði hann.

Svo kom þessi þáttur þar sem Reese var að læra að keyra og í endanum þá náðist hann. Sáuði þegar ein löggan hélt Reese niðri með einum fætinum á andliti hans? Allavega, þá sást hamsturinn labba fram hjá í þessari kúlu.
Þessi hamstur kom líka í einhverjum öðrum þætti, mna bara ekki hvaða.

En hvað um það, vildi bara svona benda ykkur á þetta, endilega fylgist vel með og viti menn, þið gætuð séð hamsturinn í einhverju atriði í framtíðinni.

Kveðja : Skari2