ég væri ekki að skrifa þessa grein nema af því að ég er í algjörum vandræðum!!!

Málið er að ég er sjúklegur aðdáandi ER eða bráðavaktarinnar. Ég hef ekki misst af þætti og er alltaf jafn spennt fyrir þáttunum. Allaveganna þá þurfti ég að óviðiráðanlegum ástæðum að fara út þegar lokaþátturinn var og auðvitað tók ég upp ER þáttin minn.

En SPÓLAN KLÁRAÐIST!!!! ég er búin að spyrja ALLA sem ég þekki hvort þeir eigi þáttin, en enginn virðist hafa tekið hann upp. Ég bað mann sem ég þekki að athug upp á RÚV hvort ég gæti fengið að sjá þáttin þar, en þættirnir þar eru ekki geymdir á VHS spólum, svo ég get ekki fengið þáttin þar…

Málið er að ég er að spá hvort einhver hérna eigi þennan þátt… eða allaveganna endinn… ég er að farast hérna!!!

geriði það ef þið eigið þáttin, eða vitið um einhvern sem á þáttin, lánið mér hann…. þið væruð að bjarga mannslífi!! ;)

kveðja kvkhamlet