Ég var að horfa á í kvöld Charmed. Gamlan þátt þar sem þær berjast við djöfla eins og venjulega!
Málið var að Prue átti að hafa fengið einhverja auka-krafta og orðið rosa sterk allt í einu! Var hún þá í kjallaranum þeirra! Síðan kemur hún upp og er þá kominn djöflinn sem þær voru að berjast við!

Núna byrjar fjörið!

Hún byrjar á að berjast eitthvað við hann og flýgur allt í einu upp í loftið og sparkar sona oft í brjóstkassann á gaurnum, gjörsamlega nákvæmlega eins og í The Matrix!!
Kemur hann þá eitthvað til baka og fer að slást við hana með höndunum! Handahreyfingarnar hjá henni eru aftur gjörsamlega nákvæmlega eins og í The Matrix!!!! (Þar sem að Neo verst gaurnum sona með einni hendi)

Hleypur hún þá sona á veggnum eins og Trinity í byrjun The Matrix og sparkar í gaurinn!

Síðan í endanum birtist önnur Prue og stekkur inn í gaurinn (aftur eins og í Matrix!!) og koma sona kúlur á kallinn (enn og aftur eins og í Matrix!!) og síðan springur kallin með sona grænum glóa (aftur!! nákvæmlega eins og í Matrix!!!!).

Þegar ég sá þetta fékk ég hroll af því hversu líkt þetta var Matrix og þvílík skömm að taka svona nákvæmlega eftir Matrix!

GJÖRSAMLEGA NÁKVÆMLEGA EINS!!
Engin undirskrift.