4 Dagar Eftir! - Sjónvarpstrivia Vill minna á fólk að það eru fjórir dagar eftir af Sjónvarpstriviunni #1..




1. Hvað hét ‘Fonzie’ í Happy Days fullu nafni?

2. Hvern lék Peter Krause í þáttaröðinni Six Feet Under?

3. Hversu margir Friends þættir voru gerðir?

4. Hvaða sjónvarpsþætti hafa Martin Scorsese, Steven Spielberg, Clint Eastwood og Robert Zemeckis allir leikstýrt?

5. Hver verður arftaki kvöldþáttar Jay Lenos?

6. Sacha Baron Cohen hefur nýlega verið að gera garðinn frægan með kvikmyndinni ‘Borat’. Persónan Borat kom þó fyrst fram á sjónvarsvið í þáttunum Ali G Show. Í þeim þáttum leikur Cohen þrjár aðal persónur, tvær þeirra eru Ali G og Borat. Hver er sú þriðja?

7. Hver var fyrsti breski sjónvarpsþátturinn til að vinna Golden Globe verðlaun fyrir besta sjónvarpsþátt?

8. Á hvaða sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum eru Lost sýndir?

9. Spurt er um sjónvarpsþátt. Þættirnir lifðu í sjö ár, á sjöunda áratugnum, og státuðu frægum Englendingi í aðalhlutverkinu. Fjórum árum eftir að þættirnir lögðu upp laupana, var Englendingi þessum boðið að leika í kvikmyndaseríu sem lifir enn í dag - En oft er sagt að hann fékk hlutverkið út af þessum þáttum.

10. Úr hvaða þætti er þetta skjáskot
The Anonymous Donor