Tvífarar Ég skrifaði reyndar um þetta efni á Kvikmyndir, en fattaði svo að þetta á eiginlega betur heima hér.

Ég hef oft verið að spá í því hvað Noah Wyle úr ER þáttunum og Hilmir Snær Guðnason, sá kynþokkafulli leikari, séu ofboðslega líkir. Þeir hafa sama nefið, sömu augun og sérstaklega hafa þeir sama brosið. Ég tók eftir þessu fyrst þegar eitthvað íslenskt leikrit var sýnt í sjónvarpinu (man ekki hvaða) og Hilmir Snær lék þar eitt aðalhlutverkið. Ég var allan tímann að reyna að fatta hvern hann minnti mig á :) Allavegana þá finnst mér þeir vera hálfgerðir tvífarar.

Eru einhverjir fleiri sem eru sammála mér ?
Kveðja,