That 70's show! Nú ætla ég aðeins að fjalla um persónurnar í That 70's show.

Kelso (Ashton Kutcher)

Kelso heldur að hann getur komist í gegn um lífið með
því að vera mjög myndalegur. Kelso er mjög heimskur og
hugsar alltaf um stelpur. Kelso hefur verið með mörgum eldri konum t.d. kennurum, konu íþróttakennarans og marga fleiri.

Fez (Wilmer Valderrama)

Fez er innlendur strákur og er ekki gefið upp hvaðan hann
er né hvað hann heitir. Það veit enginn hvað hann heitir svo allir kalla hann Fez. Fez hugsar lítið um allt annað nema að fá að
gera það. Fez á mjög erfitt með stelpur.

Eric Forman (Toper Grace)

Eric er er bara venjulegur krakki og á erfitt með foreldrana sína.
Pabbi hans er mjög strangur við hann. Mamma hans hins vegar er
alltaf góð við hann vegna þess að pabbi hans er svo leiðinlegur við hann. Eric er alltaf að vitna í teiknimynda persónur.

Hyde (Danny Masterson)

Hyde býr hjá Eric af því mamma hans og pabbi stungu af. Hann býr í
kjallaranum. Hyde er vandræði krakki, hann er alltaf að dópa og drekka og tekur hina strákana með sér. Hann er mjög mikið fyrir Led Zepplin.

Donna (Laura Prepon)

Donna býr hliðin á Eric, Eric og Donna eru saman. Donna er meira svona stelpu strákur. Mamma hennar Donnu fór frá henni og Bob pabba hennar fyrir stuttu af því hún var ekki hamingju söm.

Jackie (Mila Kunis)

Jackie er klappstýra og segir frá öllum leyndarmálum. Hún er alltaf að skamma Donnu fyrir að vera ekki nógu stelpuleg.
Jackie var með Kelso, en Kelso vildi ekki giftast henni svo hún byrjaði með Hyde.

ps. afsakið allar villur.