Spongebob Squarepants Þar sem að mér finnst Spongebob Squarepants algjör snilldarþáttur ætla ég að deila þekkingu minni á þeim þætti og fræða ykkur svolítið um hann.

Spongebob býr í ananas á botni hafsins í neðansjávarbænum Bikini Bottom. Hann vinnur sem kokkur á The Krusty Krab, home of the Krabbee Patty. Yfirmaður hans þar heitir Mr. Krabs og er eigandi The Krusty Krab. Annar starfsmaður á The Krusty Krab er Squidward, en hann er með betri stöðu þar en Spongebob. Svo eru það vinir hans: Patrick Star og Sandy Cheeks.

Spongebob: Spongebob er svampur sem býr í ananas í Bikini Bottom. Hann er mjög ljúfur og honum er annt um vini sína. Hann er mjög metnaðarfullur og er góður í að steikja Krabbee Patty. Hann getur líka verið mjög skrítinn. Hann á sér það áhugamál að veiða marglyttur og þegar stundar marglyttuveiðar þá er hann með sérstök gleraugu og netið sitt Old Faithful.

Patrick: Patrick er albesti vinur Spongebob og gera þeir allt saman. Patrick er krossfiskur. Hann er líka mjög ljúfur og er annt um vini sína. Hann er líka mjög mjög tregur. Sem dæmi var einu sinni handtekinn saklaus fyrir glæp sem hann framdi ekki. Það vildi svo til að hann var sjálfur að rannsaka málið upp á eigin spýtur og hann hafði marga grunaða s.s. steina, gras og margt annað. Svo var hann hand tekinn og þá sagði hann: “Of course, me. I'm the last one I would have suspected. Phew, I almost got away with this crime.” Hann hafði alls ekki framið glæpinn heldur bara trúað því vegna handtöku hans.

Sandy: Sandy er íkorni sem býr þarna neðansjávar. Hún býr í stórri kúlu sem að gerir henni kleyft að anda þar sem að hún er ekki sjávarvera og getur ekki andað í vatni. Hún er mjög góð í Karate og er mjög hugrökk. Hún er ekki hrædd við neitt….næstum því ekki neitt.

Squidward: Squidward er smokkfiskur. Hann vinnur með Spongebob á The Krusty Krab en er í hærri stöðu en Spongebob. Hann er líka nágranni Spongebob. Hann er alltaf mjög pirraður, sérstaklega á Spongebob og Patrick. Hann er oft mjög illgjarn og hrekkjóttur, en er fínn underneath it all.

Mr. Krabs: Mr. Krabs er krabbi og er eigandi The Krusty Krab. Hann er mjög gráðugur. Hann er nískur og er mikið að lenda í vandræðum.
Hann er mjög djúpraddaður. Hann yrðir alltaf á Spongebob sem: Lad!!
Í málinu sem að Patrick var handtekinn, sem ég sagði frá hér áðan, var Mr. Krabs sökudólgurinn. Hann er dáldið eins og Squidward: Oftast frekar ókurteis og vanþakklátur en besta skinn innst inni.

Þá eru allar aðalpersónurnar komnar. Ég vona að þið hafið haft gaman af þessu.
Kv, Yaina