Eins og ssvo margir aðrir hafði ég ekkert að gera og ákvað því að skrifa um snilldarþáttinn George Lopez sem sýndur er á Stöð2.
———————————————– ——————-

George Lopez er nýr fjölskyldu-gaman þáttur sem George Lopez sjálfur leikur í en hann er einmitt frægur uppistandari. Þetta er frumraun hans í sjónvarpi en þættirnir fjalla einmitt um að hann er hækkaður í tign og er gerður að forstjóra í flugvéla verksmiðju (minnir mig) í LA. En mamma hans er í vinnu hjá honum og gerir honum nú frekar erfitt (sem býr einmitt hjá þeim).

Þeir sem leika í þessum þáttum eru:

George Lopez(George Lopez)-Pabbinn.

Constance Marie(Angie)-Mamman, sem er alltaf að rífast við ömmuna!

Belita Moreno(Benny)-Amman, sem er alltaf að rífast við mömmuna!

Masiela Lusha(Carmen)-Systirin, sem er alltaf með toppeinkunnir o.fl.

Luis Armand Garcia(Max)-Bróðirinn, yndislegi en frekar vitlausi sonurinn!

Valente rodriguez(Ernie)-Vinur George, sem vinnur hjá honum í flugvéla verksmiðjunni.
Rokk | Metall