Hæ hæ!
Ég er mikill aðdáandi Judging Amy á skjá 1. En ég var að spá í einu. Í seinasta þætti Judging Amy þá var hún að leysa eitthvert mál um strák sem hafði lamið annan strák vegna einhverrrar stelpu og svo annað mál um forræði yfir barni. Þegar hún hafði leyst málið með líkamsárásina þá var hún rosalega glöð. Glaðari en hún er vanalega því hún er EKKI og oft mjög glöð. Þá hringir síminn hjá Amy og í símanum var kona. Kona sem Amy hafði fyrr um daginn dæmt í óvil. Hún dæmdi að konan fengi ekki forræði yfir barninu sínu. Þessi kona hringdi svo í Amy og blótaði henni í sand og ösku. Þá varð Amy leið eins og venjulega. En það sem ég var að spá í er það að það gerist aldrei neitt skemmtilegt fyrir Amy í þessum þáttum. Ég meina hún er alltaf að segja hvað lífið hennar sé slæmt og svo frammvegis. Mér finndist gaman að fá að heyra skoðanir ykkar sem eruð aðdáandar Judging Amyar. En ég tek það fram að þessir þættir eru MJÖG skemmtilegir þrátt fyrir að lífið hjá Amy sé stundum graut fúllt!! ;o)
Ástin er sársauki..