Í þættinum í dag gerðist það að…

Maddie (dóttir Ally, ég held að hún heitir Maddie) en hún sást reykja inn á klósti í skólanum sínum, en hún vildi láta koma upp um sig og verða rekin úr skólanum út af því að það átti að vera “pabbadagur”. Ally fór eitthvað að ræða við hana þá fór Maddie að ræða við Ally um Victor þá sagði Ally að þau ættu ekkert saman en því miður heyrði Victor þetta og var í einhverri fýlu.
En í lok þáttarins bauð hún honum út en síðan þegar þau áttu að fara út fattai hún að hún elskaði Larry en Victor náði að telja hana trú um að halda áfram, þá eldaði Victor fyrir hana kvöldmat og þau enduðu með því að liggja saman í sófanum og horfa á sjónvarpið!

Málið sem kom upp í þessum þætti var þannig að það var stelpa sem var að deyja út að hjartasjúkdómi en pabbi hennar, sem var í fangelsi fyrir að drepa móðir hennar, vildi gefa henni hjartað sitt. Þessi stelpa bjó hjá frænku sinni en frænka henar vildi ekki að hún fengi hjartað! En þau sáu fram á það að þau væru að tapa málinu þannig að pabbi stelpunnar skaut sig en hafði eitthvað kort hjá sér sem stóð á að hann vildi gefa líffæri sín! Þannig að stelpan fékk hjartað. Þá allt í einu vildi frænka hennar að hún fengi hjartað og allt var gott :)

En hver leikur Victor? Ég held að það sé Bon Jovi en er samt ekki viss, ég vil endilega fá svar og ég skal með glöðu geði halda áfram að skrifa greinar um Ally Mcbeal ef að þið viljið það!!!