Jæja þá er smá fjör komið í þessa þætti hjá þeim.
Þátturinn í gær sem ég sá var rosalega spennandi og ég bíð spenntur eftir framhaldinu af honum en hann held áfram að fjalla um William Hinks og hans árátta við Lindsey.Bobby leist ekki lengur á blikuna með það þannig að hann réð gaur til þess að hræða hann virkilega (Put the fear of god in his eys) eins og hann sagði.
(man ekki alveg upp á orð en eitthvað í þessa átt)
Nú þátturinn endaði þannig að það fannst afhausað lík í húsinu hjá honum Hinks og hausinn var inn í frysti.Það var nú sagt að þetta væri Hinks en ég á erfitt með því að trúa því.Bobby var búin að reyna allt til þess að stoppa hann en ekkert gekk þannig að hann fekk þennann fyrverandi skjólstæðing sinn til þess að hræða hann en ætli hann hafi virkilega stoppað hann. Við munum komast að því í næsta þætti.
Annars var ekkert spennandi í þættinum fyrir utan að hann Bobby er enn að verja þenann gaur sem var sakaður um það að myrða konuna sína en í þetta skipti skaut hann fyrrverandi vinnuveitanann sinn fyrir framan Jim og Elenor.Bobby fór víst eitthvað ill með hann Jim þegar hann var að spurja hann í réttinum og Jim var frekar illur út af því.
En annars var ekkert meira kræsandi í þættinum en ég leyfi ykkur að fylgjast með eftir næsta þátt.
KV