Ég hef nú tekið þá ákvörðun að hætta hér sem admin. Ég er búin að senda skilaboð til vefstjóra og ritsjóra um málið og bíð þess bara að þeir finni einhvern í minn stað.
Það eru tvær ástæður sem liggja að baki ákvörðun minni. Sú fyrri er einfaldlega sú að ég mun ekki hafa eins mikin tíma til að koma hér á huga eins og ég hafði áður. Það er því betra að hafa einhvern hér sem getur komið hingað reglulega.
Og í öðru lagi þá er ég orðin þreytt á þessu. Ég virðist bara fá “skítkast”, ef maður getur sagt svo, fyrir það sem ég geri hér. Þannig að það er því augljóst að þið eruð ekki ánægð með mig sem admin, en ég vona bara að þeim nýja muni ganga betur.
Ég barðist einna harðast og lengst fyrir því að fá The Sims sem áhugamál hér á huga og ég vona að þið verðið áfram dugleg að skrifa inn greinar og halda áhugamálinu lifandi.
Ég hef haft gaman af því að vera admin hér en eins og fram kom að framan, mun ég ekki hafa tíma til þess lengur sem og að ég er orðin þreytt á því.

Kær kveðja Alfons

p.s ég er kvk ekki kk ;)
-Song of carrot game-