Jæja, fyrst allt umstangið í kringum bannerkeppnina er liðið hjá, þá langar okkur að koma af stað makeover-keppni.
Þið veljið simsu(townie sem kemur forrituð með upprunalega leiknum., þ.e.a.s. ekki neina sem fylgir University, Nightlife o.s.fr.
Keppt verður í karla- og kvennasimsuflokki.
Download-hlutir eru leyfðir.
Það er stranglega bannað að láta simsurnar fara í lítaaðgerð!
Keppnin endar 15. ágúst(síðasti “skiladagur”), þið sendið inn ykkar “keppendur” og það verður kosið með því að senda skilaboð á mig eða sössu24.
Ef þið hafið einvherjar spurningar, endilega spyrjið.
Verið svo með, lömbin mín :)

LESIÐ AUGLÝSINGUNA ÁÐUR EN ÞIÐ SPYRJIÐ, TAKK!

Fyrirgefið að ég hafi ekki tekið það fram strax, en gætuð þið sett fyrir/eftri myndirnar í sömu mynd og takið fram að þær séu fyrir keppnina.