Halló svo að þið skiljið hvað ég er að fara þá ætla ég að segja ykkur að ég er með The Sims á tveimur stöðum hjá mömmu og hjá pabba. Hjá mömmu er ég bara með Livin it large en hjá pabba alla nema Unshlead og Livin it large. Ég bý í vetur hjá mömmu. Um daginn var ég í Livin it large og var með tilraunaborð og lét kallinn alltaf vera að búa til drykki, en það kom alltaf eins sem lét hann fá fullt í öllu (need´s.) En í eitt skiptið varð hann Frankenstein:) og braut vaskinn þegar hann var að þvo sér um hendurnar! En svo fór hann bara út í garð og gekk um og var eitthvað pirraður. Mér fannst það ósanngjarnt af því að mig langaði að hann myndi rústa fleiru. Hvað gera drykkirnir og hvaða litir eru á þeim. Þið munið eftir “gömlu fjölskyldunni” ég bjó hana til aftur og reyndi að gera alveg eins hús en það misheppnaðist aðeins og það kom stelpa en ekki strákur. Ég er oft að velta fyrir mér hvar ættleiðir maður börn? Ég vona að ég sé ekki leiðinleg en ég er bara 12 ára:)


Kveðja:

Helgacool