Ég var nú reyndar búin að senda þetta inn sem grein um helgina en þetta virðist ekki hafa fengið náðir fyrir augum þeirra sem fara yfir hér svo hér kemur runan :-)

Ég var að spila Sims áðan og lenti í nokkrum skrýtnum atvikum með einn ákveðin Sim sem ég er með í einu húsinu mínu.
Ég er með þernu í húsinu mínu sem eins og gefur að skilja þrífur, eldar matinn o.s.frv. Það er samt ekki þessi sem maður hringir til og ræður þannig, heldur er þessi hluti af fjölskyldunni minni þ.e. ég bjó hana til um leið og ég bjó til fjölskylduna.
Allaveganna hún hagar sér oft ansi furðulega, t.d. þegar hún er búin að sofa og orðin úthvíld, energy orðið fullt hjá henni, sefur hún bara endalaust áfram, hún fer aldrei á fætur. Ég þarf alltaf að vekja hana sem sagt, samt er hún með mjög mörg “stig” í active. Hinir meðælimir fjölskyldunnar minnar fara allaveganna á fætur þegar þau eru orðin úthvíld.
Svo þegar hún er að gera aðra hluti t.d. horfa á sjónvarpið og ég segi henni að hætta því og fara að gera eitthvað annað hættir hún samt sem áður ekki.
Síminn hringdi t.d. þegar hún var að horfa á sjónvarpið og ég sagði henni að hætta og svara í símann en hún gerði það ekki. Hélt bara áfram að horfa á sjónvarpið þótt að það væri rauður kross yfir myndinni í vinstri horninu.
Svo var hún og kallinn minn að horfa á sjónvarpið eitt kvöldið og ég sagði þeim að hætta og fara að sofa en þau sátu kyrr bæði tvö og héldu áfram.
Mér finnst þetta ferlega skrýtið, hef ekki lent í þessu áður er einhver sem kannast við þetta ?

Kv. Alfons <br><br>-Song of carrot game-
Digging carrots, muddy & muddy
Washing them, cut & cut
The soup boiling well, hot & hot
We all favorite carrot game.

(Engrish)
-Song of carrot game-